Þýski knattspyrnumaðurinn Ilkay Gündogan gengur líklega til liðs við Barcelona í sumar þegar samningur hans við Manchester City rennur út.
Þetta fullyrðir spænska íþróttadagblaðið AS í dag og segir að Xavi, knattspyrnustjóri Barcelona, hafi sjálfur rætt við Gündogan til að sannfæra hann um að koma í sínar raðir.
Gündogan er 32 ára gamall og hefur skoraði 53 mörk og átt 37 stoðsendingar fyrir Manchester City síðan hann kom til félagsins frá Borussia Dortmund fyrir sjö árum.