Sílemaðurinn Alexis Sánchez, knattspyrnumaður Marseille, hefur kastað kveðju á sinn fyrrum liðsfélaga, Mesut Özil, sem tilkynnti að hann væri hættur í fótbolta áðan.
Sánchez og Özil fögnuðu góðu gengi með Arsenal í þau fjögur ár sem þeir spiluðu saman hjá félaginu en meðal annars unnu þeir tvo enska bikartitla.
Tvíeykið myndaði einstaka tenginu og skoraði oft á tíðum glæsileg mörk. Sánchez tók sig til á Instagram og kastaði kveðju á sinn gamla liðsfélaga.
„Við skildum virkilega hvor annan vinur minn Mesut. Ég óska þér alls hins besta í næsta kafla þínum,“ sagði Sánchez.