Tottenham - Brighton og Leicester - Bournemouth beint á mbl.is

Son Heung-min og Harry Kane og félagar þeirra í Tottenham …
Son Heung-min og Harry Kane og félagar þeirra í Tottenham mæta Brighton í lykilleik Evrópubaráttunnar í dag. AFP/Peter Powell

Tveir leikir í 30. umferð  ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu sem fram fara í dag verða sýndir beint hér á mbl.is en þeir hefjast báðir klukkan 14.

Annars vegar er það leikur Tottenham og Brighton á Tottenham Hotspur-leikvanginum og hins vegar fallslagur Leicester og Bournemouth sem fram fer á King Power-leikvanginum í Leicester.

Útsendingarnar hefjast klukkan 13.30 með upphitun á Símanum Sport og eru leikirnir sýndir á sérvefnum Enski boltinn hér á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert