Manchester City styrkti stöðu sína átoppi ensku úrvalsdeildar karla í knattspyrnu efir sigur á Leeds, 2:1, í Manchester í dag.
Mörk City skoraði Þjóðverjinn Illkay Gundogan á 19. og 27. mínútu. Undir lok leiksins fékk hann svo tækifæri til að fullkomna þrennu sína en skaut í stöngina úr vítaspyrnu. Mínútu síðar minnkaði Leedsarinn Rodrigo muninn fyrir gestina en við stóð.
Manchester City er í efsta sæti deildarinnar með 82 stig, fjórum meira en Arsenal í öðru sæti.
Frank Lampard vann loksins leik sem knattspyrnustjóri Chelsea á ný með 3:1-útisigri á Bournemouth. Mörk Chelsea skoruðu Conor Gallagher, Benoit Badiashile og Joao Félix en mark Bournemouth skoraði Matias Vina. Chelsea er í 11. sæti deildarinnar með 42 stig en Bournemouth er í 14. sæti með 39.
Harry Kane skoraði sigurmarkið í 1:0-heimasigri Tottenham á Crystal Palace. Tottenham-menn eru í sjötta sæti með 55 stigen Palace er í 12. með 40.
Wolves vann 1:0-heimasigur á Aston Villa þar sem Toti Gomes skoraði sigurmarkið. Wolves er í 13. sæti með 40 stig en Aston Villa í áttunda með 54.