„Ég vil ekki verða bráðabirgðastjóri aftur“

Ekkert hefur gengið hjá Chelsea síðan Frank Lampard tók við.
Ekkert hefur gengið hjá Chelsea síðan Frank Lampard tók við. AFP/Ben Stansall

Frank Lampard, bráðabirgðastjóri enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea, segir að liðið sé ekki betra í knattspyrnu en það er að sýna þessa dagana og að það muni taka tíma að snúa við gengi þess.

Chelsea hefur tapað öllum sex leikjum sínum síðan Lampard tók við sem bráðabirgðastjóri eftir að Graham Potter var rekinn og stefnir allt í að liðið klári tímabilið í neðri hluta deildarinnar sem yrði lélegasti árangur liðsins síðan 1996.

Chelsea hefur unnið fjóra af 23 leikjum á almanaksárinu 2023 og hafa ekki skorað í 13 af þeim. Liðið gæti fallið niður í 14. sæti deildarinnar um helgina ef allt fer á versta veg.

Lampard mun ekki stýra Chelsea á næsta tímabili og segist ekki vilja vera bráðabirgðastjóri aftur í bráð.

„Ég vil ekki verða bráðabirgðastjóri aftur, ég vil komast inn í klúbb þar sem ég hef eitthvað að segja um uppbyggingu klúbbsins. Þau störf sem ég hef tekið að mér hafa verið stórar áskoranir en það er það sem lífið snýst um. Ég hef stýrt Chelsea tvisvar, Everton er stór klúbbur, Derby er stór klúbbur. En kannski mun ég hugsa hlutina öðruvísi þegar ég leita að nýju starfi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert