Liverpool einu stigi á eftir United

Mohamed Salah fagnar marki sínu ásamt Darwin Núnez og Cody …
Mohamed Salah fagnar marki sínu ásamt Darwin Núnez og Cody Gakpo. AFP/Darren Staples

Liverpool vann tæpan heimasigur á Brentford, 1:0, í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu á Anfield í dag. 

Með sigrinum kom Liverpool sér í 62 stig, einu minna en Manchester United og þremur minna en Newcastle sem eiga þó bæði tvo leiki til góða. 

Sigurmark Liverpool skoraði Egyptinn Mohamed Salah snemma leiks, nánar til tekið á 13. mínútu, er hann fékk skallasendingu þvert fyrir frá Virgil van Dijk og var með opið markið fyrir framan sig. Fyrst hitti hann ekki boltann en þar sem hann var með opið markið fyrir framan sig og nánast kominn inn í það þrumaði hann boltanum í þaknetið og kom Liverpool yfir. 

Brentford-menn unnu sig hægt inn í leikinn og náðu nokkrum góðum upphlaupum. Á 40. mínútu skoraði svo Bryan Mbuemo fyrir gestina en markið var síðar réttilega dæmt rangstætt. 

Hollendingurinn Cody Gakpo fékk bestu færin það sem eftir liðfi leiks en hann nýtti þau illa. Það kom þó ekki að sök og sigldi Liverpool sigrinum heim. 

Liverpool 1:0 Brentford opna loka
90. mín. Fjórum mínútum bætt við.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert