Arsenal minnkaði forskot Manchester City í eitt stig á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu með afar mikilvægum sigri gegn Newcastle á St. James‘ Park í Newcastle í dag.
Martin Ödegaard kom Arsenal yfir strax á 14. mínútu með frábæru skoti af 30 metra færi.
Arsenal fékk aukaspyrnu, úti vinstri megin, og þeim gekk erfiðlega að koma boltanum fyrir markið.
Sóknin virtist því vera að renna út í sandinn þegar boltinn barst til Ödegaard sem lét vaða á markið og boltinn fór á milli fóta varnarmanna Newcastle og söng svo í bláhorninu.
Bæði lið fengu fjölda tækifæri til þess að bæta við mörkum í fyrri hálfleik en Nick Pope í marki Newcastle og Aaron Ramsdale í marki Arsenal voru báðir vandanum vaxnir í markinu.
Arsenal byrjaði svo síðari hálfleikinn af miklum krafti og þeir uppskáru loksins á 71. mínútu eftir vel útfærða skyndisókn.
Martinelli fór illa með Dan Burn, varnarmann Newcastle, og átti svo fasta fyrirgjöf í teignum. Boltinn fór í tána á Fabian Schär og þaðan í netið og lokatölur því 2:0 í Newcastle.
Arsenal er nú með 81 stig í öðru sæti deildarinnar, stigi minna en Manchester City sem á leik til góða á Arsenal, en Newcastle er með 65 stig í þriðja sætinu.