Arsenal er enn á lífi í titilbaráttunni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta eftir 2:0-sigur á Newcastle á útivelli í dag.
Martin Ødegaard kom Arsenal yfir með glæsilegu skoti utan teigs á 14. mínútu og Fabian Schär gerði sjálfsmark á 71. mínútu.
Bæði lið fengu nóg af færum í leiknum og Newcastle hefði með smá heppni getað skorað fleiri en eitt mark. Arsenal nýtti færin hins vegar betur.
Svipmyndir úr leiknum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.