Brighton hefur komið flestum knattspyrnuaðdáendum á óvart með frammistöðu sinni í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta á þessu tímabili.
Liðið situr í 7. sæti deildarinnar með 55 stig, tveimur stigum á eftir Tottenham og sjö stigum á eftir Liverpool. Brighton á hins vegar þrjá leiki til góða á bæði þessi lið og er því í góðri stöðu til að tryggja sig í Evrópudeildina fyrir næsta tímabil.
Það héldu margir að Brighton-blaðran myndi springa þegar knattspyrnustjórinn Graham Potter yfirgaf félagið og tók við stjórnartaumunum hjá Chelsea.
Inn kom frekar óþekktur Ítali, Roberto De Zerbi, og tók við liðinu. De Zerbi hafði þjálfað t.a.m. hjá Sassuolo á Ítalíu og Shakhtar Donetsk í Úkraínu áður en hann mætti á suðurströnd Englands og tók við Brighton.
Eitt af fyrstu verkum De Zerbi var að losa Brighton við einn þeirra besta mann. Leandro Trossard átti ekki upp á borð hjá Ítalanum og var seldur til Arsenal. Margir stuðningsmenn Brighton ráku upp stór augu og létu óánægju sína í ljós með þessa ákvörðun.
Stuðningsmennirnir voru fljótir að gleyma þegar lið De Zerbi fór að spila einhvern skemmtilegasta fótboltann í deildinni og stigin komu í hrönnum í hús.
Lewis Dunk, leikmaður Brighton, var spurður út í tímabilið hjá hans mönnum og sagði hann elska hvert augnablik í treyju Brighton.
„Raunveruleikinn er sá að ég elska hvert augnablik hérna. Að fara út á völlinn með strákunum, vera jákvæðir og berjast saman. Hvernig er ekki hægt að njóta þess að horfa á það sem við erum að gera?
Við vitum hvar við erum staddir í töflunni en við höldum okkur á jörðinni, við vitum hvað við getum gert og reynum að sýna hvers konar lið við erum.“
Brighton mætir Everton á heimavelli á morgun, mánudag, klukkan 16.30.