West Ham tók á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Leikið var á heimavelli West Ham og urðu lokatölur leiksins 1:0, heimamönnum í vil.
Eftir leikinn er West Ham með 37 stig í 15. sæti og fór liðið langt með að bjarga sér frá falli með þessum sigri. Manchester United er í 4. sæti með 63 stig, stigi á undan Liverpool en á nú aðeins einn leik til góða á erkifjendurna.
Leikurinn fór frekar fjörlega af stað og voru það gestirnir í Manchester United sem byrjuðu betur. Marcus Rashford fékk fínasta færi á 2. mínútu leiksins eftir sendingu frá Christian Eriksen, Rashford lét vaða að marki en skot hans fór yfir markið.
Á 18. mínútu fékk Rashford boltann hægra megin í teignum. Hann keyrði á Tilo Kehrer, varnarmann West Ham, og lét vaða á nærstöngina. Skotið var gott en fór í stöngina og útaf, leikurinn enn markalaus.
Það voru heimamenn sem komust yfir í leiknum en þeir gátu þakkað David de Gea, markverði Manchester United, fyrir það. Said Benrahma vann þá boltann á miðjum vellinum, rak hann að vítateignum og lét vaða að marki. Skotið var laust en á einhvern óskiljanlegan hátt náði David de Gea ekki að verja það og boltinn lak yfir línuna. 1:0 fyrir West Ham.
Antony átti gott skot að marki á 32. mínútu sem fór af varnarmanni West Ham, í stöngina og þaðan aftur fyrir endamörk.
Ekkert meira marktækt gerðist í fyrri hálfleik og leiddu heimamenn þegar gengið var til búningsherbergja 1:0.
Seinni hálfleikurinn einkenndist af mikilli baráttu og ef eitthvað er þá var West Ham líklegra til að bæta við marki.
Michail Antonio kom boltanum í netið á 52. mínútu en Peter Bankes, dómari leiksins, dæmdi brot á Antonio en hann ýtti við David de Gea.
West Ham hélt áfram að skapa sér færi en þó engin dauðafæri og pressaði lið Manchester United stíft á West Ham vörnina undir lok leiks.
West Ham lifði sóknir United af og landaði gríðarlega mikilvægum sigri, 1:0.