Harry Kane orðinn næst markahæstur

Harry Kane fagnar marki sínu í gær.
Harry Kane fagnar marki sínu í gær. AFP/Isabel Infantes

Harry Kane, framherji Tottenham, er orðinn næst markahæstur í sögu ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta eftir að hann skoraði sigurmarkið í 1:0-sigri á Crystal Palace í gær.

Enski landsliðsmaðurinn hefur nú skorað 209 mörk í ensku úrvalsdeildinni og tók hann fram úr Wayne Rooney, fyrrum leikmanni Everton og Manchester United, með marki sínu í gær. Það tók Rooney 491 deildarleik til að skora 208 mörk, Kane hefur náð að skora sín 209 mörk í aðeins 317 leikjum sem er ótrúleg tölfræði.

Kane þarf að skora 52 mörk í viðbót ef hann ætlar að komast á topp listans en þar situr nú Alan Shearer, fyrrum leikmaður Blackburn og Newcastle, með 260 mörk.

Roy Hodgon, þjálfari Crystal Palace og fyrrum þjálfari Kane hjá enska landsliðinu, sagði eftir leik liðanna í gær að hann væri ekki í nokkrum vafa um að Kane myndi slá metið.

„Það sem hann hefur gert fyrir Tottenham er stórkostlegt. Hann er enn ungur maður og á eftir að spila í mörg ár í viðbót. Hann mun klárlega slá metið hjá Shearer ef hann helst heill.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert