Margrét Lára: Ert að fara gegn vilja þjálfarans

Margrét Lára Viðarsdóttir og Bjarni Þór Viðarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum Sport í kvöld.

Á meðal umræðuefna var ákvörðun sem leikmenn Manchester City tóku í leiknum við Leeds á laugardaginn var.

Erling Haaland leyfði þá Ilkay Gundogan að taka víti, þrátt fyrir að knattspyrnustjórinn Pep Guardiola hafi sagt Norðmanninum að taka vítið sjálfur. Gundogan var búinn að skora tvö mörk og ætlaði Haaland að leyfa honum að fullkomna þrennuna.

Þjóðverjinn skaut hins vegar í stöng og Leeds skoraði hinum megin skömmu síðar. Það kom ekki að sök að lokum, því City vann 2:1. Guardiola var hins vegar allt annað en sáttur við atvikið.

Umræðurnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert