Margrét Lára: Þolinmæði stuðningsmanna ekki mikil

Margrét Lára Viðarsdóttir og Bjarni Þór Viðarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum á Símanum Sport í kvöld.

Á meðal umræðuefna þáttarins voru hræðileg mistökin hjá David De Gea í 0:1-tapi Manchester United gegn West Ham í dag.

„Þegar hann er farinn að sýna þessa takta er þolinmæði stuðningsmanna ekki mikil,“ sagði Margrét Lára m.a. um mistökin.

Umræðurnar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert