Stuðningsmenn enska knattspyrnuliðsins Liverpool púuðu á þjóðsöng Englendinga fyrir leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni gegn Brentford í gær.
Enska knattspyrnusambandið ákvað að spila þjóðsönginn fyrir alla leiki umferðarinnar til heiðurs krýningar Karls III Bretakonungs sem fram fór í gær.
Stuðningsmenn Liverpool tóku ekki vel í þann gjörning og létu skoðun sína á konungsfjölskyldunni í ljós þegar þjóðsöngurinn var spilaður.
Kergja stuðningsmanna Liverpool nær aftur til valdatíðar Margaret Thatcher en undir hennar stjórn versnuðu aðstæður verkamanna í Liverpool til muna og voru borgarbúar Liverpool ósáttir með að Elísabet II Bretadrottning hafi leyft því að gerast.
Eftir það hafa margir borgarbúar Liverpool talað um sig sem „Scousers“ frekar en Englendinga.
Þegar enska knattspyrnusambandið hafði samband við félögin um að spila þjóðsönginn fyrir leik, mótmæltu forráðamenn Liverpool því, þeim grunaði hvað myndi gerast. Stuðningsmenn öskruðu og bauluðu, sungu um Mo Salah og hvöttu Liverpool áfram á meðan þjóðsöngurinn var í gangi.
Af enskum leikmönnum Liverpool var Jordan Henderson, fyrirliði liðsins, sá eini sem söng með þjóðsöngnum á meðan Trent Alexander Arnold og Curtis Jones tóku ekki undir.