Hollenski knattspyrnumaðurinn Wout Weghorst, sóknarmaður Manchester United, kannast ekki við að félagið sé þegar búið að taka ákvörðun um að halda honum ekki í herbúðum sínum að tímabilinu loknu.
Weghorst er sem stendur að láni hjá Man. United frá Burnley og hefur skorað tvö mörk og lagt upp þrjú önnur í 27 leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
Fyrir helgi greindi staðarblaðið Manchester Evening News frá því að félagið hygðist ekki festa kaup á Weghorst að lánssamningnum loknum.
Þær fréttir komu Hollendingnum sjálfum í opna skjöldu og vonast hann til þess að halda kyrru fyrir hjá liðinu.
„Í viðræðum mínum við félagið hefur mér verið tjáð að ánægja ríki um mig. Mér hefur svo sannarlega ekki verið tilkynnt að það vilji ekki að ég verði um kyrrt.
Þeir kunna að meta eiginleika mína og trúa því að ég komi liðinu vel. Vitanlega hef ég heyrt hið gagnstæða í fjölmiðlum en ég verð að bíða og sjá hvað gerist.
Á meðan einbeiti ég mér að því að uppfylla markmið okkar í deild og bikar,“ sagði Weghorst í samtali við The Times.