Fjöldi leikmanna Liverpool á förum

James Milner er einn miðjumanna Liverpool sem róa á önnur …
James Milner er einn miðjumanna Liverpool sem róa á önnur mið í sumar. AFP/Paul Ellis

Ljóst er að Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, þarf að styrkja liðið með miðjumönnum í sumar þar sem þegar er ljóst að fjórir miðjumenn yfirgefa félagið þegar samningar þeirra renna út að loknu yfirstandandi tímabili.

Þar er um að ræða þá Naby Keita, Alex Oxlade-Chamberlain, James Milner og Arthur Melo.

Samningar Keita, Oxlade-Chamberlain og Milner renna út í sumar auk þess sem lánssamningur Arthurs, sem er samningsbundinn Juventus, út tímabilið verður ekki endurnýjaður.

Sóknarmaðurinn Roberto Firmino hefur sömuleiðis ákveðið að róa á önnur mið þegar samningur hans rennur út.

Samkvæmt Mirror eru sömuleiðis góðar líkur á því að miðverðirnir Nat Phillips og Rhys Williams verði seldir, enda aftarlega í goggunarröðinni.

Þá gæti Fábio Carvalho hugsað sér til hreyfings þar sem tækifærin með aðalliðinu hafa verið af skornum skammti á árinu, en hann hefur aðeins byrjað einn leik eftir áramót eftir að hafa komið töluvert meira við sögu á fyrri hluta tímabilsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert