Fari svo að Argentínumaðurinn Mauricio Pochettino taki við stjórnartaumunum hjá Chelsea verður eitt stærsta verkefni hans að skera allverulega niður í risavöxnum leikmannahópi liðsins.
Pochettino er talinn líklegastur til þess að taka við liðinu og samkvæmt Daily Mail myndi hann leggja áherslu á að félagið festi kaup á nýjum markverði, miðverði og framherja fyrir næsta tímabil.
Það hefði hins vegar í för með sér að selja þyrfti töluverðan fjölda leikmanna.
Talksport greinir frá því að sá fjöldi gæti numið allt að tólf leikmönnum.
Á þeim lista eru markverðirnir Kepa Arrizabalaga og Édouard Mendy, sóknarmennirnir Romelu Lukaku, Pierre-Emerick Aubameyang, Armando Broja og Christian Pulisic, miðjumennirnir N’Golo Kanté, Mateo Kovacic, Ruben Loftus-Cheek, Conor Gallagher og Mason Mount ásamt vinstri bakverðinum Ben Chilwell.