Það ætti ekki að hafa farið fram hjá lesendum Morgunblaðsins að ég er stuðningsmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool.
Fimmtudaginn 9. febrúar skrifaði ég Bakvörð hér á íþróttasíðum Morgunblaðsins þar sem ég lýsti yfir trausti mínu á Jürgen Klopp stjóra liðsins.
Helgina áður hafði Liverpool steinlegið fyrir Wolves á útivelli, 0:3, og sat liðið sem fastast í 10. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 29 stig, 11 stigum frá meistaradeildarsæti.
Nokkrir óþolinmóðir félagar og stuðningsmenn Liverpool voru byrjaðir að kalla eftir því að Klopp yrði rekinn eftir slæmt gengi á tímabilinu. Liðið var vissulega í miklum meiðslavandræðum á þessum tíma en núna eru leikmenn á borð við Ibrahima Konaté, Diogo Jota og Luis Díaz mættir aftur á völlinn.
Bakvörðinn má lesa í heild sinni á íþróttasíðum Morgunblaðsins í dag.