Fyrsta og þúsundasta markið undir stjórn Guardiola (myndskeið)

Ríkjandi Englandsmeistarar Manchester City hafa skorað ógrynni marka í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla í stjóratíð Spánverjans Pep Guardiola, sem spannar að verða sjö ár.

Mörkin sem Man. City hefur skorað í úrvalsdeildinni undir stjórn Guardiola eru nú alls orðin 1.002.

Fyrsta markið skoraði Sergio Agüero úr vítaspyrnu gegn Sunderland.

Mark númer 1000 skoraði svo Phil Foden í 3:0-sigri á West Ham United í síðustu viku.

Mörkin tvö má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert