Gerðu gys að Richarlison (myndskeið)

Richarlison fagnar marki gegn Liverpool með því að rífa sig …
Richarlison fagnar marki gegn Liverpool með því að rífa sig úr að ofan. AFP/Paul Ellis

Michail Antonio, sóknarmaður West Ham United, og Callum Wilson, sóknarmaður Newcastle United, halda í sameiningu úti hlaðvarpi þar sem þeir ræða um knattspyrnu.

Í nýjasta þætti af The Footballer’s Football Podcast ræddu þeir félagar um Richarlison, sóknarmann Tottenham Hotspur.

Brasilíumaðurinn skoraði loks sitt fyrsta mark fyrir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á dögunum þegar hann jafnaði metin í 3:3 í leik sem Tottenham tapaði að lokum 3:4.

Antonio benti á að Richarlison hafi þrisvar áður skorað fyrir Tottenham í deildinni en að í öll þrjú skiptin hafi mörk hans verið dæmd af vegna rangstöðu. Í öll fjögur skiptin hefur hann fagnað með sama hætti.

„Hann hefur skorað fjórum sinnum á tímabilinu. Þrisvar sinnum hefur hann verið rangstæður. Hann hefur farið úr treyjunni fjórum sinnum á þessu tímabili,“ sagði Antonio.

„Hann er búinn að fá fjögur gul spjöld. Hann er næstum því kominn í leikbann vegna þeirra!“ sagði Wilson þá.

Richarlison hefur einmitt fengið gult spjald í öll fjögur skiptin en þrjú fyrstu mörkin voru dæmd af og jöfnunarmarkið gegn Liverpool var að lokum ekki nóg til að tryggja liðinu stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert