James Ward-Prowse, fyrirliði Southampton, segir leikmenn liðsins ekki hafa lært neitt af leikjum sínum á tímabilinu og því sitji liðið sem fastast á botni ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu.
„Þetta hefur verið of auðvelt. Allt frá fyrsta leik gegn Tottenham fram til þessa höfum við ekki lært neitt, við höfum ekki þróað leik okkar.
Við höfum bara tekið úrslitunum eins og þau hefur borið að garði og það er það sem veldur mestum vonbrigðum,“ sagði Ward-Prowse í samtali við heimasíðu Southampton.
Bæði Ralph Hasenhüttl og Nathan Jones hefur verið vikið frá störfum sem knattspyrnustjórar á tímabilinu og ekki hefur spilamennskan batnað undir stjórn bráðabirgðastjórans Rúben Selles.
Southampton er með 24 stig, átta stigum frá öruggu sæti, þegar liðið á einungis þrjá leiki eftir.
„Það er ljóst að við verðum að vinna alla síðustu leiki okkar. Það er staðan sem við erum í. Mikilvægi hvers einasta leiks hefur aukist. Áskorunin sem við stöndum frammi fyrir hefur ekkert breyst, við þurfum að vinna síðustu leiki okkar og vona að allt gangi upp,“ bætti miðjumaðurinn sparkvissi við.