Á förum frá Liverpool

Jürgen Klopp réð Thomas Grönnemark til félagsins árið 2018.
Jürgen Klopp réð Thomas Grönnemark til félagsins árið 2018. AFP/Ben Stansall

Innkastþjálfarinn Thomas Grönnemark Larsen er á förum frá enska knattspyrnufélaginu Liverpool í sumar.

Það er The Athletic sem greinir frá þessu en Grönnemark hefur verið í þjálfarateymi úrvalsdeildarfélagsins frá árinu 2018.

„Ég er stoltur af árangri mínum með liðið og frá því að ég tók við hefur Liverpool farið úr 18. sæti í það fyrsta þegar kemur að því að taka innköst undir pressu,“ skrifaði Grönnemark í færslu sem hann birti á Twitter.

Óvíst er hvað tekur við hjá þjálfaranum en hann hefur einnig unnið hjá Ajax í Hollandi, Lyon í Frakklandi og með mexíkóska landsliðinu á ferlinum.

Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, hefur alltaf talað mjög vel um Grönnemark og sagt hann eiga stóran þátt í hröðum uppgangi liðsins síðustu ár en óvíst er hvort ráðinn verði inn nýr þjálfari í stað Danans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert