Enska knattspyrnufélagið Brentford er byrjað að undirbúa lífið án spænska markvarðarins David Raya, en hann verður samningslaus eftir næsta tímabil og hefur hafnað nýjum samningstilboðum.
Hann hefur verið orðaður við Tottenham, Chelsea og Manchester United. Brentford vill fá 40 milljónir punda fyrir þann spænska.
Á meðal þeirra markvarða sem Brentford er að skoða er Írinn Caoimhin Kelleher, varamarkvörður Liverpool. Kelleher á þrjú ár eftir af samningi sínum við Liverpool, en hefur áhuga á að verða aðalmarkvörður hjá öðru liði.
Sky greinir frá að Brentford hafi einnig áhuga á Frakkanum Alban Lafont, sem leikur með Nantes, og Mark Flekken, markverði Freiburg í Þýskalandi og hollenska landsliðsins.