Hefur verið erfitt fyrir hann

Aleksandar Mitrovic í þann mund að hrinda Chris Kavanagh dómara …
Aleksandar Mitrovic í þann mund að hrinda Chris Kavanagh dómara í mars síðastliðnum. AFP/Paul Ellis

Marco Silva, knattspyrnustjóri Fulham, segir serbneska framherjann Aleksandar Mitrovic kláran í slaginn fyrir síðustu þrjá leiki liðsins á tímabilinu eftir að hafa tekið út átta leikja bann.

Mitrovic fékk beint rautt spjald fyrir að hrinda Chris Kavanagh dómara í bikarleik gegn Manchester United 19. mars síðastliðinn.

Fyrir vikið var hann úrskurðaður í átta leikja bann af enska knattspyrnusambandinu og verða því liðnir tæplega tveir mánuðir frá því hann spilaði síðast, komi Serbinn öflugi við sögu á laugardag þegar Fulham heimsækir botnlið Southampton í ensku úrvalsdeildinni.

„Þetta hefur verið erfiður tími fyrir hann en hópurinn hefur stutt við bakið á honum og það sama á við um stuðningsmennina.

Það verður frábært að fá hann til baka. Hann hefur höndlað þetta vel og hefur unnið með liðinu allan tímann,“ sagði Silva á blaðamannafundi í dag.

Mitrovic hefur skorað tólf mörk og lagt upp fjögur til viðbótar í 25 deildarleikjum hjá Fulham á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert