Jamie Vardy, sóknarmaður Leicester City, segir að takist liðinu að halda sér uppi í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu yrði það hans mesta afrek á ferlinum.
„Akkúrat núna yrði það mitt mesta afrek. Svo mikilvægt er það. Þetta er erfitt og að segja að þetta sé sárt nær ekki nægilega vel utan um hvernig mér líður persónulega með þetta,“ sagði Vardy í samtali við Talksport.
Leicester er sem stendur í 18. sæti, fallsæti, þegar einungis þrjár umferðir eru eftir af ensku úrvalsdeildinni.
Hinn 36 ára gamli Vardy hefur áorkað ýmsu á sínum ferli og ber þar hæst að nefna einn óvæntasta Englandsmeistaratitil í sögunni, sem hann vann til með Leicester árið 2016.
Einnig varð hann bikarmeistari með liðinu árið 2021 og lék á EM 2016 og HM 2018 með enska landsliðinu.
„Eftir að hafa gengið í gegnum hæðir og lægðir allan þann tíma sem ég hef varið hér þá vildi ég aldrei nokkurn tímann sjá okkur aftur í þeirri stöðu sem við erum í. Því er erfitt að sætta sig við þá stöðu sem við erum í.
Við getum ekkert aðhafst þegar kemur að því sem er búið og gert. Við getum ekki breytt úrslitum leikja sem eru búnir, við vitum það. Við eigum þrjá leiki eftir og verðum að ná í stig, svo einfalt er það.
Ég elska þetta félag. Þetta særir mig mjög mikið persónulega. Ég verð að stíga upp og taka ábyrgð. Ég verð að gera mitt allra besta og reyna að hjálpa liðinu eins mikið og ég mögulega get,“ bætti Vardy við.