Brighton að fá þýskan landsliðsmann

Mahmoud Dahoud er á leiðinni til Brighton.
Mahmoud Dahoud er á leiðinni til Brighton. AFP/Ina Fassbander

Enska knattspyrnufélagið Brighton hefur komist að samkomulagi við þýska landsliðsmanninn Mahmoud Dahoud og mun hann ganga í raðir félagsins í sumar á frjálsri sölu frá Dortmund.

Dahoud verður væntanlega þriðji leikmaðurinn sem Brighton fær til sín fyrir næstu leiktíð. Félagið hefur þegar fest kaup á João Pedro frá Watford og James Milner mun að öllum líkindum ganga í raðir félagsins frá Liverpool.

Dahoud hefur leikið með Dortmund frá árinu 2017 og skorað fjögur mörk í 101 leik í þýsku 1. deildinni. Þar á undan lék hann með Borussia Mönchengladbach. Leikmaðurinn hefur leikið tvo leiki fyrir þýska landsliðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert