Unai Emery, knattspyrnustjóri Aston Villa, hefur verið útnefndur stjóri aprílmánaðar í ensku úrvalsdeildinni.
Emery hefur lyft grettistaki hjá Villa eftir að hafa tekið við af Steven Gerrard í lok október á síðasta ári og hlýtur nú verðlaunin í fyrsta sinn á ferli sínum, en hann stýrði áður Arsenal um eins og hálfs árs skeið.
Í apríl vann Villa fimm af sjö leikjum sínum í úrvalsdeildinni og er í harðri baráttu um Evrópusæti í efri hluta deildarinnar eftir að hafa verið nær fallsvæðinu þegar Emery tók við.