Fjórtán ára æfði með Chelsea

Leikmenn Chelsea fagna marki í 3:1-sigri á Bournemouth um síðustu …
Leikmenn Chelsea fagna marki í 3:1-sigri á Bournemouth um síðustu helgi. AFP/Ian Kington

Enginn skortur er á leikmönnum hjá karlaliði Chelsea í knattspyrnu, sem býr yfir stærsta leikmannahóp ensku úrvalsdeildarinnar. Alltaf má þó blómum á sig bæta eins og hinn 14 ára gamli Charlie Holland fékk að reyna.

Holland, sem er fyrirliði U14-ára liðs Chelsea, fékk nefnilega tækifærið á æfingu með aðalliði Chelsea í gær og aftur í morgun.

Goal greinir frá því að Holland hafi verið verðlaunaður með því að fá boð á æfingu með aðalliðinu eftir að hafa staðið sig frábærlega með U14-ára liðinu, sem vann Albert Phelan-bikarinn á dögunum með 5:0-sigri á Fulham í úrslitaleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert