Norski markahrókurinn Erling Haaland, sóknarmaður Manchester City, er leikmaður aprílmánaðar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir magnaða frammistöðu sína í mánuðinum.
Haaland var einnig útnefndur leikmaður mánaðarins í ágúst síðastliðnum og hlýtur því verðlaunin í annað sinn á sínu fyrsta tímabili í ensku úrvalsdeildinni.
Í apríl skoraði Norðmaðurinn í öllum fjórum leikjunum sem Man. City lék. Allir unnust þeir og skoraði Haaland sex mörk og lagði upp tvö til viðbótar.
Í mánuðinum jafnaði hann metið yfir flest mörk skoruð í úrvalsdeildinni á einu tímabili, 34, og sló það svo með sínu 35. marki í maí.