Markahrókarnir valdir bestir

Sam Kerr í leik með Chelsea.
Sam Kerr í leik með Chelsea. AFP/Adrian Dennis

Markahrókarnir Erling Haaland og Sam Kerr voru í dag útnefnd leikmenn ársins af samtökum íþróttafréttamanna á Englandi.

Haaland hefur skorað 51 mark í 47 leikjum með Manchester City í öllum keppnum á leiktíðinni og átt stóran þátt í að liðið getur enn unnið Meistaradeildina, enska bikarinn og enska meistaratitilinn.

Sam Kerr, sem er áströlsk landsliðskona, hefur skorað 27 mörk fyrir Chelsea á leiktíðinni. Liðið er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, stigi á eftir Manchester United og með leik til góða. Liðin mætast einmitt í bikarúrslitum á sunnudaginn kemur.

Erling Haaland hefur raðað inn mörkum.
Erling Haaland hefur raðað inn mörkum. AFP/Javier Soriano
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert