David Moyes, knattspyrnustjóri West Ham United, vill ólmur halda fyrirliða sínum Declan Rice innan herbúða liðsins en gengst við því að líkurnar séu miklar á því að enski landsliðsmaðurinn rói á önnur mið.
Rice er afar eftirsóttur varnartengiliður en hefur ekki viljað skrifa undir nýjan samning við Hamrana. Flest stærstu félög Englands hafa verið orðuð við hann.
Núverandi samningur Rice rennur út sumarið 2024 þó West Ham eigi möguleika á því að framlengja hann sjálfkrafa um eitt ár.
„Við vonum að Dec verði um kyrrt. Við myndum elska að hafa hann áfram sem leikmann West Ham en við áttum okkur á því að svo gæti ekki farið. Það er einn möguleikinn.
Samkvæmt áætlun okkar höldum við Dec hérna en okkur er þó fyllilega kunnugt um það að það eru miklar líkur á því að við náum ekki að halda honum,“ sagði Moyes á blaðamannafundi í dag.