Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, á erfitt með að skilja leikjadagskrá liðsins í ensku úrvalsdeildinni með hliðsjón af verkefnum liðsins á öðrum vígstöðvum.
Man. City heimsækir Everton í deildinni á sunnudag og tekur svo á móti Real Madríd í síðari leik liðanna í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudag.
Til samanburðar mætir Real Madríd Getafe í spænsku deildinni á laugardag og fær því einn aukadag í hvíld fyrir leikinn mikilvæga í Meistaradeildinni.
„Svona er þetta bara. Ég skil þetta ekki en ég ætla ekki að mótmæla þessu lengur. Ég átta mig ekki á þessu en við þurfum að laga okkur að aðstæðum. Það eina sem ég hugsa um er Everton, ekkert annað.
Við höfum ekki mjög mikinn tíma til þess að undirbúa okkur fyrir Madríd vegna þess að við spilum á sunnudag, takk kærlega fyrir það, en leikurinn á Goodison er í algjörum forgangi,“ sagði Guardiola á blaðamannafundi í dag.
Man. City er með eins stigs forystu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar og á einn leik til góða á Arsenal þegar skammt er eftir af tímabilinu.
Staðan í einvígi Englandsmeistaranna gegn Real Madríd er 1:1 eftir fyrri leikinn á Spáni síðastliðið þriðjudagskvöld.