Skipti í evrópskan fótbolta og berst um Evrópusæti

Roberto De Zerbi faðmar Alexis Mac Allister, einn lykilmanna Brighton.
Roberto De Zerbi faðmar Alexis Mac Allister, einn lykilmanna Brighton. AFP/Glyn Kirk

Brighton & Hove Albion hefur vakið athygli fyrir skemmtilegan fótbolta undir stjórn Ítalans Roberto De Zerbi á yfirstandandi tímabili.

De Zerbi tók við stjórnartaumunum hjá Brighton í upphafi tímabils þegar Graham Potter var ráðinn til Chelsea.

Góð spilamennska hefur leitt af sér að Brighton er í harðri baráttu um Evrópusæti í ensku úrvalsdeildinni. Er liðið sem stendur í sjöunda sæti deildarinnar og á tvo leiki til góða á Tottenham Hotspur og Liverpool í sætunum fyrir ofan.

„Þegar ég hóf störf hérna var markmiðið að ná tíunda sæti. Ég skipti yfir í evrópskan fótbolta. Ég óttast ekki þann möguleika að við náum ekki markmiðum okkar,“ sagði De Zerbi á blaðamannafundi í dag.

Nái Brighton að uppfylla markmiðið um Evrópusæti yrði það í fyrsta skipti í 122 ára sögu félagsins sem það næðist. Ítalinn sagði nauðsynlegt að taka áhættur á leiðinni að toppnum.

„Maður tapar einungis þegar maður berst ekki, reynir ekki, þegar maður sýnir ekki hugrekki, þegar maður stefnir ekki hærra. Maður tapar þegar trú skortir,“ sagði De Zerbi einnig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert