VAR í notkun í öllum úrslitaleikjum umspils

Stuðst verður við myndbandsdómgæslu í úrslitaleikjunum.
Stuðst verður við myndbandsdómgæslu í úrslitaleikjunum. AFP/Lindsey Parnaby

Stuðst verður við myndbandsdómara, VAR, í öllum þremur úrslitaleikjum ensku deildakeppninnar í knattspyrnu karla, EFL, sem munu fara fram á Wembley í Lundúnum í lok mánaðarins.

VAR er ekki í notkun í neðri deildum Englands en á síðasta ári var hins vegar stuðst við myndbandsdómgæslu í úrslitaleikjunum þremur.

Slíkt hið sama verður upp á teningnum í ár þegar úrslitaleikir umspils B, C, og D-deilda Englands fara fram.

Úrslitaleikur umspils B-deildar fer fram laugardaginn 27. maí, úrslitaleikur umspils C-deildar sunnudaginn 28. maí og úrslitaleikur umspils D-deildar mánudaginn 29. maí.

Luton, Middlesbrough, Coventry og Sunderland leika um eitt sæti í úrvalsdeildinni.

Sheffield Wednesday, Barnsley, Bolton og Peterborough leika um eitt sæti í B-deildinni.

Stockport, Carlisle, Bradford City og Salford City leika um eitt sæti í C-deildinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert