Leeds og Newcastle gerðu 2:2 jafntefli í hádegisleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Eftir jafnteflið situr Leeds í 18. sæti með 31 stig en Newcastle situr í 3. sæti deildarinnar með 66 stig.
Leikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn en þeir komust yfir á 7. mínútu leiksins með marki frá bakverðinum Luke Ayling þegar hann fylgdi eftir skalla frá Rodrigo sem Nick Pope, markvörður Newcastle, hafði varið. 1:0 fyrir heimamenn og stemningin mikil á Elland Road.
Leeds fékk dauðafæri til að tvöfalda forystuna á 28. mínútu þegar Simon Hooper, dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu á Joelinton, leikmann Newcastle. Patrick Bamford fór á punktinn og hamraði boltann að marki en spyrnan var arfaslök og Nick Pope varði vel í markinu.
Þremur mínútum síðar hafði Newcastle jafnað leikinn. Maximilan Wöber braut þá klaufalega á Alexander Isak innan vítateigs og Hooper dæmdi aðra vítaspyrnu. Callum Wilson steig upp og skoraði örugglega framhjá Joel Robles markmanni Leeds. Allt orðið jafnt, 1:1.
Hinn vítaóði Simon Hooper dæmdi þriðju vítaspyrnu leiksins á 69. mínútu þegar hann dæmdi hendi á Junior Firpo, varnarmann Leeds. Aftur fór Callum Wilson á punktinn og skoraði hann aftur af miklu öryggi og kom Newcastle yfir, 2:1.
Heimamenn í Leeds gáfust ekki upp og jöfnuðu leikinn á 79. mínútu þegar Rasmus Kristensen skoraði. Leeds fékk þá hornspyrnu sem leikmenn Newcastle náðu ekki að hreinsa frá, boltinn barst til Kristensen sem skaut að marki. Boltinn fór af Kieran Trippier, leikmanni Newcastle og þaðan í markið.
Junior Firpo fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt í uppbótartíma þegar hann braut á Anthony Gordon.
Newcastle reyndi hvað það gat til að ná inn sigurmarkinu en það tókst ekki. Lokatölur 2:2.