Erik ten Hag, þjálfari Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, segir að auðveldara sé að laða gæðaleikmenn til félagsins núna heldur en þegar hann tók við félaginu fyrir ári síðan.
„Það er stór munur á milli ára. Núna sjá leikmenn að það er ákveðið verkefni í gangi og þess vegna vilja þeir ganga í raðir félagsins. Í fyrra var alltof mikil óvissa og það reyndist erfitt að sannfæra ákveðna leikmenn að koma til okkar. Ég hef tekið eftir að það er talsvert auðveldara í ár, það eru margir hágæða leikmenn sem vilja koma til okkar.“ sagði Ten Hag.
Síðasta sumar þá keypti Manchester United þá Casemiro, Christian Eriksen, Antony, Lisandro Martinez og Tyrell Malacia. Liðið reyndi einnig að kaupa hollenska landsliðsframherjann Cody Gakpo en hann valdi að lokum að ganga til liðs við Liverpool.
Manchester United situr í 4. sæti ensku úrvalsdeidarinnar og er í harðri baráttu við Newcastle og Liverpool um Meistaradeildarsæti.
„Við verðskuldum að vera í þessari stöðu, núna þurfum við bara að klára þetta. Þetta verða erfiðar lokaumferðir, það eru miklar kröfur og þess vegna erum við í þessu starfi. Það er kominn tími til að stíga upp og taka ábyrgð.“ sagði Ten Hag.
Manchester United tekur á móti Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag og verður leikurinn í beinni textalýsingu á mbl.is.