Manchester United vann sterkan 2:0 heimasigur á Wolves í ensku úrvalsdeildinni í dag með mörkum frá Anthony Martial og Alejandro Garnacho.
Eftir leikinn er Manchester United í 4. sæti deildarinnar með 66 stig, jafnt Newcastle að stigum og fjórum stigum á undan Liverpool. Wolves er í 13. sæti deildarinnar með 40 stig.
Heimamenn voru töluvert betri aðilinn í leiknum í dag og verðskulduðu sigurinn.
Ekkert dauðafæri leit dagsins ljós fyrr en á 30. mínútu þegar Antony, leikmaður Manchester United, átti skalla úr markteignum en hann fór vel yfir markið.
Það kom ekki að sök því að á 32. mínútu skoraði Anthony Martial og kom heimamönnum 1:0 yfir. Bruno Fernandes fékk þá boltann á miðjunni og átti góða sendingu inn fyrir á Antony. Brassinn gerði mjög vel og renndi boltanum fyrir markið á Martial sem kláraði auðveldlega í opið markið.
Heimamenn héldu áfram að þjarma að marki gestanna en Darren Bentley, markvörður Wolves, átti stórleik í markinu, í sínum fyrsta úrvalsdeildarleik, og varði hvert skotið á fætur öðru.
Það var þó á fimmtu mínútu uppbótartíma sem annað markið kom. Bruno Fernandes sendi þá Alejandro Garnacho í gegn sem kláraði færi sitt mjög vel, setti boltann í stöngina og inn. 2:0 fyrir heimamenn og sigurinn innsiglaður.
Liðsmenn Wolves voru fínir úti á velli en náðu ekki að skapa sér nein teljandi færi í þessum leik. Lokatölur, 2:0 fyrir Manchester United.