Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham er enn í knattspyrnustjóraleit en félagið hefur verið með tvo bráðabirgðastjóra síðan það rak Antonio Conte úr stjórastól í mars sl.
Eftir að Conte var rekinn þá var Christian Stellini, fyrrum aðstoðarmaður Conte, ráðinn sem bráðabirgðastjóri en það entist stutt því hann var síðan rekinn í apríl sl. eftir 6:1 tap fyrir Newcastle.
Þá steig inn Ryan Mason og hefur hann stýrt liðinu síðan. Mason er einmitt á blaði stjórnar um mögulega framtíðarstjóra félagsins.
Ásamt honum þá er stjórnin að skoða Xabi Alonso, þjálfara Bayer Leverkusen, sem og Vincent Kompany sem stýrði Burnley aftur upp í deild hinna bestu í Englandi á yfirstandandi tímabili.
Julian Nagelsmann var á tímabili talinn líklegastur til að taka við Tottenham en engar viðræður hafa átt sér stað milli félagsins og hans.
Tottenham leitar sér einnig af yfirmanni íþróttamála eftir að Fabio Paratici sagði af sér í síðasta mánuði. Siglfirðingurinn Grétar Rafn Steinsson, fyrrum landsliðsmaður í fótbolta, fékk þá stærra hlutverk hjá Tottenham en hann starfar þar í dag. Grétar tók þá yfir störf Paratici á meðan leit af eftirmanni hans stendur yfir.