Argentínski knattspyrnustjórinn Mauricio Pochettino verður næsti stjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea.
Pochettino leysir Frank Lampard af eftir leiktíðina, en Lampard hefur stýrt Chelsea til bráðabyrgða með mjög slökum árangri undanfarnar vikur.
The Athletic greinir frá að Pochettino muni skrifa undir langtímasamning við Chelsea á næstu dögum.
Pochettino þekkir vel til á Englandi, því hann stýrði bæði Southampton og Tottenham með góðum árangri. Þá hefur hann einnig stýrt París SG.
Chelsea er í 11. sæti með 43 stig. Fær Pochettino það verðuga verkefni að koma liðinu aftur í fremstu röð.