Þetta fyrsta mark er brandari

Felix Örn Friðriksson og Kjartan Már Kjartansson í baráttunni í …
Felix Örn Friðriksson og Kjartan Már Kjartansson í baráttunni í dag. mbl.is/Óttar Geirsson

„Það vantaði meiri baráttu. Við reyndum að halda meira í boltann en það virðist sem það tapist barátta við að halda meira í hann,“ sagði svekktur Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, í samtali við mbl.is eftir 0:4-tap liðsins gegn Stjörnunni í Bestu deildinni í dag.

Björn Berg Bryde skoraði fyrsta mark leiksins strax á 5. mínútu, með fríum skalla í teignum eftir hornspyrnu. Varnarleikur ÍBV var langt frá því nógu góður og Hermann var ekki sáttur við sína menn.

„Þetta fyrsta mark er brandari; svifbolti inn í teig og enginn upp í hann. Það eru rosaleg vonbrigði. Við áttum ágæta kafla en fáum svo á okkur annað mark, þar sem var aftur einbeitingarleysi. Það eru lykilpunktar í þessum leik sem við nýttum ekki, þegar við náum að pressa þá vel. Það var vendipunktur að fá þetta annað mark á okkur,“ útskýrði Eyjamaðurinn.

Eiður Aron Sigurbjörnsson fékk rautt spjald þegar korter var eftir og Stjarnan fékk víti, sem fjórða markið kom úr. Eiður lét þá skapið hlaupa með sig í gönur og sparkaði í Eggert Aron Guðmundsson þegar boltinn var hvergi nærri.

„Ég sá það ekki. Ég vissi ekki hvað var að gerast. Ég skil pirringinn í þeim. Þeir voru að koma seint þegar Elvis og Eiður voru með boltann. Það var aldrei dæmt og ég skil pirringinn, sérstaklega þegar þú ert undir líka. Dómarinn hefði getað gert þetta betur og spjaldað þá fyrir að skilja eftir, þegar við vorum löngubúnir að losa boltann,“ sagði Hermann.

Hermann Hreiðarsson var ekki sáttur í leikslok.
Hermann Hreiðarsson var ekki sáttur í leikslok. Ljósmynd/Sigfús Gunnar
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert