Vandræði Chelsea halda áfram - Southampton fallið

Raheem Sterling skoraði tvö fyrir Chelsea í dag.
Raheem Sterling skoraði tvö fyrir Chelsea í dag. AFP/Glyn Kirk

Fimm leikjum var að ljúka í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta þar sem Southampton varð fyrsta liðið til að falla úr deildinni á þessu tímabili.

Manchester United styrkti stöðu sína í Meistaradeildarbaráttunni með sterkum heimasigri á Wolves, 2:0. Anthony Martial og Alejandro Garnacho skoruðu mörkin.

Southampton varð fyrsta liðið á þessu tímabili til þess að falla úr deildinni eftir tap á heimavelli gegn Fulham, 0:2. Carlos Vinicius og Aleksandar Mitrovic skoruðu mörk Fulham í dag. Þetta var fyrsti leikur Mitrovic eftir að hafa setið af sér átta leikja bann fyrir að stugga við dómara í tapi fyrir Manchester United fyrr á tímabilinu.

Vandræði Chelsea halda áfram en liðið gerði jafntefli á heimavelli á móti Nottingham Forest, 2:2. Forest komst yfir með marki frá Taiwo Awoniyi en Raheem Sterling skoraði þá tvö mörk til að koma Chelsea aftur yfir. Það var síðan Awnoiyi sem að jafnaði metin fyrir Forest og leikar enduðu jafnir.

Aston Villa vann Tottenham á heimavellli, 2:1. Jacob Ramsey og Douglas Luiz komu Aston Villa í 2:0 áður en Harry Kane minnkaði muninn með marki úr vítaspyrnu í uppbótartíma.

Þá vann Crystal Palace góðan sigur á Bournemouth, 2:0. Eberechi Eze skoraði bæði mörk heimamanna í leiknum.

Fyrr í dag gerðu Leeds og Newcastle jafntefli, 2:2. Luke Ayling kom Leeds yfir áður en Callum Wilson skoraði úr tveimur vítaspyrnum fyrir gestina. Það var síðan Rasmus Kristensen sem að jafnaði fyrir heimamenn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert