Bjarni Þór Viðarsson valdi ekki 36 marka manninn Erling Haaland sem leikmann ársins í ensku úrvalsdeildinni á nýafstöðnu tímabili.
Bjarni og Gylfi Einarsson voru gestir Tómasar Þórs Þórðarsonar í lokaþætti Vallarins og voru beðnir um að verðlauna meðal annars leikmenn og þjálfara ársins.
Gylfi valdi líkt og flestir Norðmanninn Erling Haaland en Bjarni valdi í staðinn Spánverjann Rodri, annað árið í röð, og færði rök fyrir því.
Myndskeiðið af verðlaunaafhendingunni má sjá í spilaranum hér fyrir ofan en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.