Grétar kominn með nýtt starf á Englandi

Grétar Rafn Steinsson.
Grétar Rafn Steinsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Grétar Rafn Steinsson er kominn með nýtt starf sem yfirmaður leikmannakaupa hjá knattspyrnufélaginu Leeds United en hann hætti störfum sem frammistöðustjóri hjá Tottenham í síðasta mánuði. 

The Athletic greinir frá en Grétar hvarf á brott hjá Tottenham þar sem félagið vildi vinna að endurskiplagningu í efstu lögum þess. Eitt af því var að fækka millistjórnendum. 

Grétar tekur við, ásamt öðrum, af fyrrverandi yfirmanni knattspyrnumála Victori Otra sem hætti störfum hjá Leeds í maí eftir sex ár í starfinu. 

Leeds féll úr úrvalsdeildinni niður í B-deildina á síðasta tímabili og ljóst er að það verða miklar breytingar á leikmannahópi liðsins í sumar. Verður því nóg að gera hjá Grétari sem mun vera í stóru hlutverki í leikmannaskiptum hjá félaginu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert