Liverpool vann 4:0-sigur á Leicester í æfingaleik liðanna í Singapúr í morgun.
Mörk Liverpool skoruðu Darwin Núnez, Bobby Clark, Diogo Jota og Ben Doak.
Liverpool mætir síðar þýska stórveldinu Bayern München í seinni æfingaleik sínum í Singapúr næsta miðvikudag.