Stórleikur Arnórs í London

Arnór Sigurðsson hefur farið afar vel af stað með Blackburn.
Arnór Sigurðsson hefur farið afar vel af stað með Blackburn. Ljósmynd/Blackburn Rovers

Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson skoraði tvö mörk í 4:0-útisigri Blackburn Rovers á Queens Park Rangers í ensku B-deildinni í fótbolta í dag. 

Mörk Arnórs komu á 23. og 60. mínútu en Skagamaðurinn hefur farið einstaklega vel af stað eftir að hann kom til baka úr meiðslum. 

Með sigrinum komst Blackburn upp í 17. sæti deildarinnar með 13 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert