Ekkert fékk Hazard stöðvað (myndskeið)

Belgíski knattspyrnumaðurinn Eden Hazard tilkynnti í morgun að skórnir væru komnir upp í hillu.

Eftir erfið ár hjá Real Madríd ákvað Hazard að láta staðar numið en áhorfendur ensku úrvalsdeildarinnar muna eftir vængmanninum sem einum hæfileikaríkasta leikmanni sem spilað hefur í deildinni er hann lék með Chelsea um langt árabil.

Af því tilefni að töframaðurinn hefur lagt skóna á hilluna ákvað úrvalsdeildin að taka saman nokkur af fallegustu tilþrifum Hazards á ferli hans með Chelsea.

Myndskeið af Hazard að leika listir sínar má sjá í spilaranum hér að ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samstarfi við Símann Sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert