Newcastle vann góðan 4:1 sigur á Chelsea í 13. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Newcastle fór með sigrinum upp í sjötta sæti deildarinnar með 23 stig en Chelsea situr í tíunda sæti með 16 stig.
Alexander Isak kom heimamönnum í Newcastle yfir á þrettándu mínútu eftir flotta sendingu frá Lewis Miley en einungis tíu mínútum síðar skoraði Sterling fyrir Chelsea og jafnaði metin. Hálfleikstölur 1:1 í fjörugum leik.
Þegar hálftími var til leiksloka létu þó leikmenn Newcastle til skarar skríða og skoruðu tvö mörk á tveimur mínútum og komu Newcastle í 3:1, mörkin voru skoruð af þeim Lascelles og Joelinton.
Lengi gat vont versnað þó fyrir Chelsea en fyrirliðinn Reece James fékk sitt annað gula spjald og var sendur af velli þegar 15 mínútur voru til leiksloka og því ljóst að erfitt verkefni varð ennþá erfiðara. Gordon jók svo forskot Newcastle-manna með marki á 83. mínútu og staðan orðin 4:1, sem urðu lokatölur í dag.