Jóhannes Karl er handviss um að Thomas Frank, knattspyrnustjóri Brentford, sé langt frá því að vera ánægður með lokamínútur sinna manna í gær. Arsenal bar sigur úr býtum 1:0 þökk sé skallamarki frá Kai Havertz á 89. mínútu.
„Hann er væntanlega alveg trylltur. Hann ætlaði ekkert að tapa þessum leik,“ sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins, en hann, ásamt Gylfa Einarssyni, var gestur Tómasar Þórs Þórðarsonar í Vellinum í gærkvöld.
Eitt af viðfangsefnum þáttarins var varnarleikur leikmanna Brentford síðustu mínúturnar og hvert upplegg knattspyrnustjórans er, almennt.
Umræðurnar um mistökin má sjá í spilaranum hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann Sport