Nóg var að gera hjá knattspyrnudómaranum Michael Salisbury þegar Fulham tók á móti Wolves í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Leiknum lauk með dramatískum sigri Fulham, 3:2, en Salisbury dæmdi þrjár vítaspyrnur í leiknum.
Willian tryggði Fulham dýrmætan sigur í uppbótartíma síðari hálfleiks með marki úr vítaspyrnu.