Knattspyrnumaðurinn Erling Haaland fór reiður af velli í jafntefli Manchester City gegn Tottenham, 3:3, í ensku úrvalsdeildinni dag og hélt síðan áfram að deila bræði sinni á X eftir leik.
Undir lok leiks var brotið á Haaland en hann hélt áfram og Simon Hooper, dómari leiksins, ætlaði fyrst að gefa hagnað.
Haaland sendi frábæra sendingu upp völlinn á Jack Grealish sem hefði getað komist einn á móti markmanni en þá hætti Hooper við að gefa hagnaðinn og allt sauð upp úr hjá City.
Haaland deildi atvikinu á X með textanum „WTF“ við myndbandið.
— Erling Haaland (@ErlingHaaland) December 3, 2023